Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

úps, framlenging á ofurlaunum

Blessuð skilanefndin mun halda áfram að eiga fyrir saltinu í grautinn sinn. Nú er búið að framlengja greiðslustöðvun bankans um enn aðra heila 9 mánuði. Hver getur skilið þetta???Á meðan sölsa eignarhaldsfélög bankanna undir sig leigumarkaðinn líka fyrir utan allt annað sem bankarnir eru að ryksuga. Hvernig er þetta hægt, undirboð á leiguhúsnæði sem búið er að taka upp í skuldir sem búið er að afskrifa. Asskoti væri líka gaman að fá uppgefinn launakostnað skilanefndanna og hvort þetta hafi ekki verið grín að þær muni starfa í einhverju skjóli næstu árin. Er ekki hægt að smella inn eins og einni eða tveimur myndavélum svo almúginn geti nú fylgst með störfum nefndarmanna og séð hvað þeir bralla þarna um ókomin ár. Spennandi raunveruleikasjónvarp það.
mbl.is Greiðslustöðvun framlengd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brenglað gildismat

Það er auðvitað sorglegt að lesa um svona lagað og enn sorglegra að þetta skyldi fara alla leið í dómskerfinu þrátt fyrir að manngreyið borgi ÁTVR andvirðið til baka. Hversu margar vodkaflöskur skyldi þessi skrípaleikur kosta okkur í ónýtum krónum. Alltaf verður skemmtilegra að bera saman smáglæpi borgaranna og stórglæpi hvítflibbanna.
mbl.is Dæmdur fyrir að stela vodkaflösku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Lonely Soldiersson

Höfundur

Lonely Soldiersson
Lonely Soldiersson
Hafnfirðingur
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband